Fyrirsætan Kolfinna Kristófersdóttir og leikkonan Elva Ósk Ólafsdóttir koma fram í nýju myndbandi Bang Gang við lagið Sabazios O. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.
Lagið er af nýrri plötu Bang Gang, The Wolves Are Whispering, sem kom út á dögunum. Barði sjálfur kemur einnig fram í myndbandinu sem Máni Sigfússon tekur upp og leikstýrir.
Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.