Menntaskóladrengir fengu Kött Grá Pje til að rappa með sér, sjáðu myndbandið

Vídeo og sketsfélagið SviMA úr Menntaskólanum á Akureyri hefur ent frá sér lagið Emma. Kött Grá Pje, einn heitasti rappari landsins um þessar mundir, rappar í laginu. Sjáðu myndbandið hér fyrir ofan.

Heiðar Aðalbjörnsson kemur fram í laginu. Hann segir að tilefnið hafi verið árshátíð skólans í lok nóvember en þar sýnir SviMA alltaf sketsaþátt sem endar yfirleitt á lagi.

Kött Grá Pje var í MA svo að okkur datt í hug að heyra í honum. Hann hafði strax mikinn áhuga á þessu þannig að við staðfestum tíma hjá StopWaitGo og fengum Lárus Örn Arnarson til þess að vinna í takt fyrir okkur.

Sjáðu myndbandið hér fyrir ofan.

Auglýsing

læk

Instagram