Myndband: Cardi B og Nicki Minaj í ryskingum í partíi: Læt engan fokka í velgengni minni

Rapparanum Cardi B og fylgdarliði rapparans Nicki Minaj lenti saman í partíi á vegum tímaritsins Harper’s Bazaar á tískuvikunni í New York í gærkvöldi. Myndband virðist sýna Cardi B henda hælaskó í áttina að Nicki Minaj en sú fyrrnefnda birti í kjölfarið yfirlýsingu á Instagram.

Í umfjöllun um málið á vef The Daily Beast kemur fram að Nicki Minaj hafi verið að blanda geði við gesti partísins þegar Cardi B kemur askvaðandi og segir henni til syndanna. Nicki á að hafa látið ummælin sem vind um eyru þjóta.

Þá kemur fram að myndbönd sýni Cardi B henda hælaskó í áttina að Nicki Minaj, lenda í ryskingum við Rah Ali, félaga Nicki Minaj, áður en henni var fylgt út af öryggisvörðum.

Hér má sjá einhvers konar ryskingar

Cardi B og Nicki Minaj hafa átt í útistöðum í rúmt ár en í umfjöllun Daily Beast kemur fram að Nicki hafi átt upptökin, meðal annars með því að hæðast að henni í tónlist sinni. Í yfirlýsingu sem Cardi B birti á Instagram eftir atvikið í gær sakar hún Nicki Minaj um að reyna að grafa undan tónlistarferli sínum, meðal annars með því að hafa í hótunum við fólk sem vill vinna með henni tónlist.

Þá segir hún að Nicki Minaj hafi dregið nýfædda dóttur sína inn í málið ásamt hæfileikum hennar til að ala upp barn. „Þegar þú talar um dóttur mína þá er mér nóg boðið. Ég er búin að leggja allt of hart að mér til að láta einhvern fokka í velgengni minni. Loks segir hún að Nicki Minaj sé píka.

Yfirlýsinguna má sjá hér fyrir neðan

View this post on Instagram

PERIOD.

A post shared by Cardib (@iamcardib) on

Auglýsing

læk

Instagram