Netflix boðar komu sína til Íslands: „Þjónusta okkar verður í boði á Íslandi fljótlega“

Afþreyingarrisinn Netflix boðar komu sína til Íslands á vefsíðu sinni. „Þjónusta okkar verður í boði á Íslandi fljótlega,“ segir í skilaboðum á vefsíðu Netflix. Þetta er í fyrsta skipti sem Netflix boðar komu sína til landsins opinberlega.

Óvíst er hvenær nákvæmlega þjónustan verður í boði hér á landi, en tugir þúsunda nýta sér þegar þjónustuna hér á landi með krókaleiðum.

Nútíminn sagði fyrstur fjölmiðla frá því í október á síðasta ári að Netflix væri að vinna að því að opna fyrir þjónustu sína hér á landi.

Í febrúar var svo greint frá því að Sam-félagið hafi náð samningum við Netflix. Þá var gert ráð fyrir að opnað verði fyrir þjónustuna seint á þessu ári. Árni Samúelsson, forstjóri Sam-félagsins staðfesti þetta við fréttastofu RÚV.

Sjá einnig: Netflix prófar að loka á notendur sem fara krókaleiðir að áskrift

Áður en Netflix opnar fyrir þjónustu sína hér á landi þarf fyrirtækið að semja um sýningarréttinn á kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og barnaefni.

Viðræður afþreyingarrisans við íslensku fyrirtækin hófust í fyrra. Búið er að semja við Sam-félagið en í janúar var greint frá því að viðræður við Senu væru langt komnar en að viðræðurnar við Myndform séu ekki eins langt komnar.

Að minnsta kosti 20 þúsund íslensk heimili eru tengd Netflix í gegnum krókaleiðir, samkvæmt könnun MMR fyrir Viðskiptablaðið.

Netflix hyggst semja um notkun á íslenskum textum. Heimildir Nútímans herma að fyrirtækið sé þegar byrjað á því og Íslensk fyrirtæki sem sjá um textun séu að þjónusta Netflix.

Auglýsing

læk

Instagram