Ólétt mamma og sex ára dóttir hennar slá í gegn með svakalegu dansmyndbandi

Nikki Taylor og dóttir hennar, hin sex ára gamla Jaylyn, hafa slegið í gegn með eldhressu dansmyndbandi á Facebook. Búið er að horfa á myndbandið hátt í 18 milljón sinnum frá því að Taylor birti það um síðustu helgi. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

Myndbandið hefst á því að Jaylyn kynnir mömmu sína til sögunnar og segir hana ætla að rokka. Mamma hennar bætir svo við að hún sé komin átta mánuði á leið, sem gæti haft áhrif á dansinn.

Mæðgurnar taka svo þvílíkan dans fyrir áhorfendur. Þær bjuggust ekki við þessum vinsældum og Taylor segir í athugasemd fyrir neðan myndbandið að ef Ellen Degeneres býður þeim í þáttinn sinn verði hún eins og hvalur í sjónvarpinu.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan. Skorum á ykkur að bráðna ekki.

she kills me, im winded.. but this is as good as it gets lmao

Posted by Nikki Taylor on Friday, June 26, 2015

Auglýsing

læk

Instagram