Sýnishorn úr nýjum þætti Steinda

Þetta verður eitthvað.

Tökur á gamanþáttaröðinni Hreinn Skjöldur standa nú yfir. Steindi Jr. er á bakvið þættina ásamt þeim Ágústi Bent og Magnúsi Leifssyni en þríeykið var einnig á bakvið Steindann okkar.

Steindi fer sjálfur með aðalhlutverk þáttanna ásamt Sögu Garðarsdóttur og Pétri Jóhanni Sigfússyni. Ýmsir aukaleikarar koma fram í þáttunum. Nútíminn greindi til að mynda frá endurfundum Þorsteins Guðmundssonar og Gunnars Jónssonar, Gussa, á dögunum.

Þeim bregður fyrir í nýju sýnishorni úr þáttunum en einnig sjást þekkt andlit eins og Hilmir Snær, Damon Younger, Gunnar Sigurðarson, Laddi, Pálmi Gestsson og Gunnar Helgason.
Hér er nýtt sýnishorn úr þáttunum og það lítur ansi vel út:

Auglýsing

læk

Instagram