Vandræði í svefnherberginu í nýju atriði úr Venjulegu fólki: „Ert það ekki þú?“

Grínþáttaröðin Venjulegt fólk verður frumsýnd í Sjónvarpi Símans Premium þann 2. nóvember næstkomandi. Nútíminn mun hita upp fyrir þættina í vikunni og birta atriði úr þáttunum.

Með aðalhlutverk í þáttunum fara Vala Kristín og Júlíana Sara sem léku áður saman í þáttunum Þær Tvær. Þær skrifa einnig þættina ásamt Dóra DNA og Fannari úr Hraðfréttum sem leikstýrir þáttunum. Hilmar Guðjónsson og Arnmundur Ernst leika einnig á þáttunum sem fjalla um dramað sem fylgir lífsgæðakapphlaupi tveggja vinkvenna.

Í atriðinu hér að neðan má sjá þau Hilmar Guðjónsson og Júlíönu Söru leika hjón sem reyna að nýta þann litla tíma sem þau fá frá börnunum sínum.

Auglýsing

læk

Instagram