Marineraðir tómatar sem eru góðir með ÖLLU!

Hráefni:

  • 400 gr kirsuberjatómatar, skornir í fernt
  • 1/4 rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
  • 1/2-1 hvítlauksgeiri, maukaður
  • sjávarsalt eftir smekk
  • 1/2 dl gæða ólívuolía
  • 1 msk rauðvínsedik
  • Safinn af einni sítrónu
  • svartur pipar
  • Nokkur lauf fersk basilika

Aðferð:

1. Setjið tómatana, rauðlauk, hvítlauk í skál ásamt smá salti.

2. Bætið næst ólíuolíu, rauðvínsediki, sítrónusafa, svörtum pipar og basiliku saman við og blandið ölli vel saman. Leyfið þessu að standa við stofuhita í 1-2 klukkustundir. Kryddið þetta til með salti og pipar áður en þetta er borið fram.

Auglýsing

læk

Instagram