Auðvelt að gleðja Bieberinn, fagnaði þegar hann heyrði lagið sitt í útvarpinu

Justin Bieber yfirgaf landið í gær. Söngvarinn hefur verið umtalaðasti maður landsins frá því að hann lenti á mánudag en hann var ánægður með ferðina, eins og Nútíminn greindi frá í gær.

Sjá einnig: Justin Bieber kveður klakann: „Besta ferð allra tíma — Ísland, við elskum þig“

Eins og myndbandið hér fyrir neðan sýnir þarf ekki mikið til að gleðja kappann. Myndbandið er af Snapchat og í því sést þegar hann heyrir lagið sitt What Do You Mean í útvarpinu og gleðst á einlægan hátt.

Leiðrétt: Í fyrstu kom fram að hann hafi heyrt lagið í íslensku útvarpi. Það virðist hins vegar ekki vera rétt. Þetta ku vera útvarpsstöðin Z100. Okkar mistök. Sorrí.

Við sjáum ekki betur en að hann sé í hettupeysu frá 66°Norður, fyrir þau sem vilja stela stílnum af söngvaranum. Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.

https://www.youtube.com/watch?v=XT6VuN4YKPI

Hér má svo sjá myndbandið við lagið

Auglýsing

læk

Instagram