Myndband: Katy Perry kemur nakin fram til að hvetja fólk til að mæta á kjörstað

Katy Perry kemur nakin fram í myndbandi grínvefsins Funny Or Die til að hvetja fólk í Bandaríkjunum til að mæta á kjörstað. Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.

Forsetakosningarnar fara fram 8. nóvember og með myndbandinu vilja Katy Perry og grínistarnir hjá Funny Or Die leggja áherslu á að það skiptir ekki máli hvernig þú mætir á kjörstað, ef þú bara mætir.

Katy Perry birti þessa mynd á Instagram á mánudaginn og sagðist ætla að nota líkama sinn sem smellubeitu (e. clickbait) til að breyta heiminum.

Katy Perry segist vilja að almenningur og þá sérstaklega ungt fólk taki meiri þátt í stjórnmálaumræðu.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan

Auglýsing

læk

Instagram