Myndband: Krúttleg panda leikur sér á snjókarli í dýragarði í Toronto

Myndband sem sýnir pönduna Da Mao leika sér í snjónum í dýragarði í Toronto í Kanada hefur vakið mikla athygli.

Það kemur ekki á óvart, hún er alveg ótrúlega krúttleg!

Eftir að myndbandinu var deilt á YouTube-aðgangi dýragarðsins á þriðjudaginn hafa rúmlega 800 þúsund manns horft á það.

Pandan klifrar ítrekað upp á snjókarl sem dýrahirðar garðsins byggðu henni til skemmtunar. Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan. 

Auglýsing

læk

Instagram