Myndband: Skyggna geitin Boots spáir Hillary Clinton sigri á Donald Trump

Bandaríkjamenn ganga til kosninga í dag og sérfræðingar keppast um að spá fyrir úrslitum með hinum ýmsu leiðum.

Skoska dagblaðið The Scotsman fékk með sér í lið skyggnu geitina Boots sem er sögð geta séð inn í framtíðina. Boots hefur aldrei klikkað á spá sinni hingað til og spáði rétt fyrir um úrslit þjóðaratkvæðugreiðsluna um Bretland og Evrópusambandið.

Boots spáir Hillary Clinton sigri og nú er bara að bíða og sjá hvort hvort hún hafi rétt fyrir sér. Myndbandið af spá Boots má sjá hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram