Nýjasti tengdasonur Íslands fær sér húðflúr á hausinn, gerir það sem honum sýnist

Það er ekkert gaman að deila með ykkur myndböndum sem sýnir venjulegt fólk gera venjulega hluti. Þess vegna er kraftakarlinn Rich Piana okkur ofarlega í huga.

Piana er einn nýjasti tengdasonur Íslands en hann kvæntist vaxtaræktarkonunni Söru Heimisdóttur á dögunum. Fyrir neðan má sjá myndband af honum fá sér tattú á hausinn en hann er duglegur að deila allskonar myndböndunum með aðdáendum sínum.

Sjá einnig: Sara Heimis kynntist Rich Piana á Facebook: „Sumt fólk mun aldrei finna svo ást í lífinu“

Aðdáendahópur hans er stór en hundruð þúsunda fylgja honum á Youtube og Instagram og búið er að horfa á myndbandið hér fyrir neðan meira en 200 þúsund sinnum.

Piana gerir það sem honum sýnist enda mun hann aldrei vera með yfirmann, eins og hann segir sjálfur í titli myndbandsins.

Auglýsing

læk

Instagram