Sjáðu IKEA-geitina brenna: „Ég er bara miður mín yfir þessu“

IKEA-geitin brann í dag. Skellur.

Þetta gerðist þrátt fyrir öryggisgæslu, myndavélakerfi og rafmagnsgirðingu. Á Vísi kemur fram að ekki hafi verið um óprúttna aðila að ræða í þetta skipti.

Haft er eftir Þórarni Ævarssyni, framkvæmdastjóra IKEA, að hún hafi brunnið einn, tveir og þrír. „Mér sýnist hún hafa framið sjálfsmorð,“ segir hann á Vísi.

Ég er bara miður mín yfir þessu. Nú þarf maður bara að syrgja.

Fótboltamaðurinn Guðjón Baldvinsson birti þetta myndband á Twitter sem sýnir geitina í ljósum logum.

Auglýsing

læk

Instagram