Sjónvarpsstöðin ÍNN hættir og Helgi bjó til hjartnæmt myndband sem þú verður að sjá

Eins og greint var frá í fjölmiðlum í gær hefur sjónvarpsstöðin ÍNN verið lögð niður. Uppistandarinn, Helgi Steinar Gunnlaugsson er mikill aðdáandi stöðvarinnar gerði að því tilefni myndband þar sem hann tók saman bestu augnablik stöðvarinnar. Sjáðu myndbandið hér að ofan.

Í færslu sem Helgi skrifar á Facebook segir hann að stöðin hafi verið sér mjög kær. „Eftir 10 ár í loftinu hefur sjónvarpsstöðin ÍNN kvatt okkur Íslendinga og í tilefni þess ákvað ég að setja saman smá minningarmyndband,“ segir í færslunni.

Í þessu hjartnæma myndbandi rifjar Helgi meðal annars upp bestu augnablik Ingva Hrafns, sjónvarpsstjóra og Magga Texas.

Auglýsing

læk

Instagram