Örskýring: Hvað er málið með veiðimennina sem gerðu allt vitlaust í Hornvík?

Um hvað snýst málið?

Ferðamenn lögðu undir sig neyðarskýli í Hornvík á dögunum og beittu skotvopnum sem eru bönnuð í friðlandinu ásamt því að kveikja eld í grónu landi.

Hvað er búið að gerast?

Við Höfn í Hornvík lá selur sem hafði verið skotinn og fláður að hluta. Þá voru merki um varðeld í grónu landi, mávur hafði verið skotinn og lundi veiddur.

Jón Smári Jónsson, umsjónarmaður friðlandsins, segir í samtali við RÚV að Umhverfisstofnun taki málið til alvarlegrar skoðunar og óski eftir rannsókn lögreglu á þeim brotum sem stofnunin telur að hafi verið framin.

Ferðaþjónustufyrirtækið Strandferðir flutti mennina sjóleiðis inn í Hornvík og sótti viku síðar. Í tilkynningu harmar fyrirtækið að hafa ekki tilkynnt Ísafjarðarbæ um ferðir þeirra, sem ferðaþjónustufyrirtækjum ber að gera til 15. júní.

Í tilkynningunni lýsa Strandferðir yfir megnustu skömm á aðkomunni sem blasti við þegar mennirnir voru sóttir, framkoma þeirra samræmist á engan hátt þeim gildum sem fyrirtækið vilji standa fyrir. Starfsfólk Strandferða harmar virðingarleysi mannanna gagnvart náttúru og neyðarbúnaði á staðnum.

Skotveiðimaðurinn Kristján Vídalín Óskarsson, sem er einn mannanna, segir í samtali við RÚV að málið sé stormur í vatnsglasi.

Hvað gerist næst?

Kristján Vídalín segist búast við því að þeir félagarnir verði yfirheyrðir af lögreglu og að þá komi sannleikurinn í ljós.

Örskýringar eru 200 orða fréttaskýringar Nútímans um mál sem mikið er fjallað um. Sendu okkur póst ef þú ert með hugmynd að örskýringu.

Auglýsing

læk

Instagram