,,Aðstoðarfólk Ben Stillers fór á taugum þegar ég neitaði að næringarútreikna“

Sólveig Eiríksdóttir, eða Solla, er löngu orðin þjóðargersemi. Hún er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar. Ferill þessarrar mögnuðu konu spannar yfir áratugi og ótrúlega fjölbreytt svið. Í viðtalinu ræða þau Sölvi um feril Sollu í viðskiptum, sem meðal annars hefur valdið því að nafn Sollu er svo þekkt að hún þarf alltaf að passa sig á því hvað hún segir opinberlega og stundum hefur hún meira að segja brennt sig á því þó að hún hafi ekki sagt orð.

,,Ég fékk einu sinni símtal (frá fjölmiðlum) þegar ég bjó úti í Danmörku, þegar David Wolfe var að halda fyrirlestur á Gló, þar sem hann var að tala um að bóluefni gætu verið varasöm og allt í einu var fólk bara farið að sniðganga Gló. En þarna er þetta bara þannig að af því að þetta var á Gló og ég var Gló þá voru bara afleiðingar. Ég var ekki einu sinni á landinu og vissi ekki einu sinni að honum hefði verið leigður þessi staður. En manneskjan sem gekk hve harðast á móti mér hafði verið að leita sér hjálpar hjá manneskju sem var mikill talsmaður gegn bólusetningum. Þegar ég benti henni á að hún væri þar með í raun í sömu sporum og ég, þá hvarf gagnrýnin strax.“

Solla segir að í áraraðir hafi hún verið meðvituð um að hún geti ekki aftengt persónuna Sollu frá vörumerkjunum sem henni tengjast. 

,,Ég hef alltaf verið að passa mig mjög vel á því hvað ég segi opinberlega, af því að um leið og ég segi eitthvað, þá er það tengt við veitingastaðina mína og vörulínurnar.“

Í viðtalinu talar Solla líka um tímann þegar hún var einkakokkur Ben Stiller í 2 mánuði.

,,Hann var að frá fimm á morgnana langt fram á kvöld, þannig að hann var á rosalega strangri fæðu til að hafa orku í þetta allt. Á morgnana vildi hann hálfan lítra af grænum djús sem var svo basískur að meira að segja mér fannst hann ansi hressandi!“

Aðstoðarfólki Stillers leist ekki alveg á blikuna fyrst þegar þau sáu vinnubrögð Sollu.

,,Ég átti að gera fjórtán rétti á hverjum degi með næringarinnihaldi og svo átti hann að velja úr og það voru einhverjir aðrir búnir að vera að elda fyrir hann og hann þótti eitthvað erfiður af því að hann vildi allar máltíðir næringarútreiknaðar. Ef það á að næringarútreikna fjórtán máltíðir á dag, þá tekur það fimm sinnum lengri tíma en að elda matinn. En af því að ég er orðin miðaldra og meira sama, þá gafst ég upp á að næringarútreikna eftir fyrsta daginn. Ég hugsaði að annað hvort vildi hann útreikninga eða mat og ákvað að skrifa bara á umbúðirnar utan um matinn: ,,Stútfullt af hamingju og ást“ og það fóru allir á taugum yfir því að hann myndi ekki kunna að meta þetta. Ég sagði þeim að láta manninn bara fá þetta og annars yrði hann bara að fá einhvern annan. Honum fannst þetta svo gaman að hann hlakkaði alltaf til að sjá hvað ég skrifaði á matinn á hverjum degi,“ segir Solla og heldur áfram.

,,Þarna fékk ég líka að elda fyrir Sean Penn og ég get sagt þér það að hann er alvöru töffari! Ben Stiller varð eins og smástrákur þegar hann mætti. Maður sá alveg að Sean Penn var hetjan hans.“

Í viðtalinu ræða Sölvi og Solla um feril Sollu í viðskiptum, bókaútgáfuna hjá stærstu forlögum heims, ástríðuna fyrir matnum, matreiðsluna fyrir heimsfrægt fólk, dansinn sem hjálpaði henni út úr ,,burnouti“ og margt margt fleira.

Viðtalið í heild má sjá hér að neðan:

Auglýsing

læk

Instagram