Stungu af án þess að greiða reikninginn

Óskað var eftir aðstoð lögreglu á veitingahús í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi. En þar hafði par stungið af án þess að greiða fyrir þær veitingar sem þau höfðu neytt. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.

Lögreglan hafði upp á fólkinu og gaf parið þá skýringu að þau hefðu ætlað að greiða fyrir veitingarnar en áttað sig á því að hvorugt þeirra var með kort eða peninga. Þau hafi því ákveðið að hlaupa.

Auglýsing

læk

Instagram