Arnar Grant og Ívar Guðmunds hrekkja bíógesti, stukku á svið í flautuleikarabúningum

Töf varð á frumsýningu myndarinnar Triple 9 á dögunum þegar prótínbræðurnir Arnar Grant og Ívar Guðmunds hrekktu bíógesti. Sjáðu myndband af hrekknum hér fyrir neðan.

Eftir að auglýsing þeirra félaga var sýnd á undan myndinni stukku Arnar og Ívar á svið í flautuleiarabúningum og marseruðu svo stuttbuxnaklæddir með þverflautur um salinn líkt og í auglýsingunni sjálfri.

Áhorfendur ráku svo upp stór augu þegar hátt í fjörutíu manns, á vegum þeirra Arnars og Ívars, stóðu upp úr sætum sínum víðsvegar í salnum og fylgdu þeim þeim út úr salnum.

Sjáðu myndband af uppátækinu hér fyrir neðan.

Öllum áhorfendum voru svo boðnar heilsusamlegar kræsingar úr smiðju þeirra félaga frammi í aðalrými Laugarásbíós en eftir það gátu þeir tyllt sér aftur í sætin sín og sýningin loks hafist.

Auglýsing

læk

Instagram