Fyrstu myndirnar úr Tarzan birtar, Hvað er að frétta af Alexander Skarsgård?

Fjölmiðlar víða um heim hafa í dag misst sig yfir nýjum myndum úr kvikmyndinni The Legend of Tarzan, sem verður frumsýnd á næsta ár. Svíinn Alexander Skarsgård fer með hlutverk Tarzans í myndinni og Margot Robbie leikur Jane.

Myndirnar má sjá hér fyrir neðan en þær sýna að sá sænski hefur verið ansi duglegur í ræktinni undanfarið ásamt því að borða skyrið sitt.

 

Ansi duglegur

 

Var hann ekki hálfgerður sláni?

edit-25195-1449674124-15

Skarsgård sagði í viðtali við USA Today að nýja myndin um apabróðurinn verði ólík sögunni sem við þekkjum.

„Ólíkt klassísku sögunni, sem fjallar um að temja dýrið, fjallar myndin um mann sem heldur aftur af sér og hverfur hægt og rólega til villta dýrsins innra með honum.“ Samuel L. Jackson, Chrstoph Waltz og Djimon Hounsou fara einnig með hlutverk í myndinni sem David Yates leikstýrir.

Auglýsing

læk

Instagram