Gunnar Nelson upp um tvö sæti á styrkleikalista veltivigtarinnar

Bardagakappinn Gunnar Nelson færist upp um tvö sæti á styrkleikalista veltivigtarinnar í UFC eftir sigurinn g Alex Oliveira um helgina. Gunnar sem verið hefur frá vegna meiðsla í langan tíma er nú kominn í tólfta sæti.

Gunnar Nelson sigraði Brasilíumanninn Alex Oliveira í UFC bardaga um helgina. Slagurinn var ansi blóðugur en Gunnar blóðgaði Oliveira með olbogahöggi. Oliveira fellur um tvö sæti niður í það fimmtánda eftir tapið.

Þeir Colby Covington, Kamaru Usman  og Darren Till leiða listann sem helstu áskorendur meistarans Tyrons Woodley.

Auglýsing

læk

Instagram