Jóhann Jóhannsson tilnefndur til Óskarsverðlauna

Tónlistarmaðurinn Jóhann Jóhannsson var rétt í þessu tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir tónlist sína í kvikmyndinni The Theory of Everything eftir James March.

Myndin fjallar um ævi vísindamannsins Stephen Hawking og leikararnir Eddie Redmayne og Felicity Jones fara með aðalhlutverkin.

Sjá einnig: Sex hlutir sem þú vissir ekki endilega um Jóhann Jóhannsson

Jóhann fékk Golden Globe-verðlaunin nú í byrjun vikunnar. Hann var þar með fyrsti Íslendingurinn sem fær þessi verðlaun, sem eru á meðal þeirra stærstu í Hollywood.

„Þegar maður fær efni í hendurnar eins og þessa mynd þá er starfið auðvelt,“ sagði hann í þakkarræðunni.

Auglýsing

læk

Instagram