Sanna og Daníel gagnrýna meirihlutasáttmálann: Yfirlýsing um áframhaldandi húsnæðiskreppu

Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavík, segir að meirihlutasáttmáli Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna  sem var kynntur í Reykjavík í gær sé fráleit niðurstaða miðað við það sem flokkarnir sögðu og héldu fram í kosningabaráttunni.

Sanna Magdalena og Daníel Örn Arnarsson varaborgarfulltrúi gagnrýna sáttmálann harðlega í tilkynningu frá Sósíalistaflokknum.  „Þessi sáttmáli boðar engar aðgerðir sem máli skipta til að bæta lífskjör láglaunafólks og annarra fátækra. Þeir brauðmolar sem þau fá eru bæði fáir og smáir,“ segir Sanna.

Miskunnarlaus stefna gagnvart fátæku fólki

Sanna og Daníel gagnrýna húsnæðismálin, samgöngumálin og skólamálin í yfirlýsingu. Í meirihlutasáttmálanum er ráðgert að fjölga félagslegum íbúðum um 500 á kjörtímabilinu. Daníel segir að það sé í raun yfirlýsing um áframhaldandi húsnæðiskreppu í þeim hluta samfélagsins þar sem láglaunafólk býr.

„Í dag eru um 960 fjölskyldur á biðlista eftir félagslegu húsnæði í Reykjavík og vitað er að á bak við listann er þúsundir, sem þurfa á félagslegri íbúð að halda en sjá engan tilgang í að skrá sig á biðlista, sem borgaryfirvöld ætla sér ekki að tæma.“

Sanna segir að meirihlutinn ætli sér að reka nánast óbreytta húsnæðisstefnu og það sé húsnæðisstefna sem miði að því að hin verr stæðu beri allan kostnað af kreppunni. „Hin verr stæðu í Reykjavík hafa tekið á sig gríðarlegar hækkanir húsaleigu vegna húsnæðiskreppunnar og þær hækkanir hafa étið upp ráðstöfunarfé þeirra fjölskyldna sem síst mátti við auknum byrðum,“ segir hún.

Þetta er miskunnarlaus stefna gagnvart fátæku fólki, að varpa öllum kostnaði af vandanum yfir á þau sem síst geta staðið undir því.

Sanna og Daníel eru einnig ósátt með samgöngumálin en meirihlutinn vill fjölga strætóferðum á háannatíma og fella niður fargjöld barna 12 ára og yngri sem ferðast í fylgd með fullorðnum. Daníel efast um að fátækar fjölskyldur geti nýtt sér það úrræði.

„Hvernig eiga fátækar fjölskyldur að nýta sér þetta? Á einstæða móðirin í láglaunastarfinu að taka sér frí til að geta ferðast með barninu sínu eftir skóla í tómstundir eða í pössun til afa og ömmu? Og til hvers? Svo strætó fái fullt fargjald frá henni frekar en hálft frá barninu?“

„Skólinn á að vera gjaldfrjáls”

Í meirihlutasáttmálanum er lagt til að hver fjölskylda greiði ekki námsgjald með fleirum en einu barni og að hver fjölskylda greiði ekki matagjald með fleiri en tveimur börnum eftir árið 2021. Sanna segir að skólinn eigi að vera alveg gjaldfrjáls en hún talaði um vaxandi stéttaskiptingu í skólakerfinu í kosningabaráttunni.

„Gjaldfrjáls skóli er ein af stoðum velferðarkerfisins og forsenda góðs samfélags. Þótt þessar tillögur lækki gjaldtökuna hjá barnmörgum fjölskyldum þá eru þetta aðeins hænuskref sem gagnast fáum. Við Daníel erum bæði uppkomin fátæk börn. Þessar tillögur hefðu engu breytt fyrir okkur eða fátækar mæður okkar. Í dag er hellingur af börnum sem búa við sömu aðstæður og við bjuggum við. Það er ekkert í þessum sáttmála sem mun gagnast þeim börnum. Og það er sorglegt.“

Lifa í annarri Reykjavík

Sanna og Daníel segja að meirihlutasáttmálinn sýni að þau þurfi að verða borgarfulltrúar þess fólks sem hann horfir framhjá og nær ekki að snerta. Sáttmálinn nái ekki að snerta neitt af því sem þau lögðu áherslu á í kosningabaráttunni.

„Ekkert í þessum sáttmála nær að snerta það sem við lögðum til,“ segir Daníel. „Sáttmálinn afhjúpar að meirihlutaflokkarnir lifa í annarri Reykjavík en við sósíalistar.”

Auglýsing

læk

Instagram