Sleigh Bells og Gus Gus boða komu sína á Sónar

Sleigh Bells og Gus Gus hafa boðað komu sína á Sónar Reykjavík á næsta ári.

Þetta kemur fram í frétt á vef tónlistarhátíðarinnar. 

Sónar Reykjavík hefst 16. febrúar og stendur yfir í þrjá daga í Hörpu á fjórum sviðum.

Þetta er í fimmta skipti sem hátíðin er haldin í Reykjavík og á meðal þeirra hljómsveita og listamanna sem koma fram í ár eru Fatboy Slim, De La Soul, FM Belfast og Emmsjé Gauti.

 

Auglýsing

læk

Instagram