Zlatan Ibrahimovic gengur til liðs við FH, frábært aprílgabb á Nútímanum enn og aftur

Sænski fótboltamaðurinn Zlatan Ibrahimovic er genginn til liðs við FH og leikur með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar. Zlatan er staddur á landinu og heilsar upp á aðdáendur sína og liðsins í verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði klukkan 17 í dag. Athugið að um aprílgabb Nútímans er að ræða, þannig að við mælum ekki með því að fólki mæti á staðinn.

Zlatan gekk nýlega til liðs við bandaríska fótboltaliðið LA Galaxy en þangað kom hann frá Manchester United. Hann lék sinn fyrsta leik með LA Galaxy í vikunni og skoraði glæsilegt mark sem hefur vakið heimsathygli.

„FH vildi Zlatan og FH fékk Zlatan,“ segir Zlatan í samtali sem blaðamaður Nútímans skáldaði til að undirbyggja þessa grínfrétt í tilefni dagsins. „Ég hlakka til að mæta liðum sem ég hef lengi dáðst að, eins og Víkingi og Stjörnunni.“

Við tökum fram enn á ný að um aprílgabb er að ræða. Þessi frétt er ekki sönn.

Auglýsing

læk

Instagram