Instagram-blæti lögreglunnar tekið fyrir í íslenskum gamanþætti á Youtube

Instagram-blæti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er á meðal þess sem tekið er fyrir í nýjum þætti af Cloud of Ash, sem datt á Youtube í dag. Horfðu á þáttinn hér fyrir neðan.

Sjá einnig: Nýtt íslenskt grín: Þáttaröð í heild sinni á Youtube

Cloud of Ash er íslensk gamanþáttaröð á Youtube. Þættirnir eru örstuttir, í kringum þrjár mínútur, og fjalla um Atla og Brogan sem starfa í lundabúð í Reykjavík. Steindór Grétar Jónsson skrifaði þættina og Garðar Stefánsson leikstýrir. Með aðalhlutverk fara Atli Bollason og Brogan Davison

Instagram-reikningur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur vakið heimsathygli og er nú kominn með 160 þúsund fylgjendur.

Horfðu á þáttinn hér fyrir neðan. Fleiri þætti má finna hér.

Auglýsing

læk

Instagram