Instagram-blæti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er á meðal þess sem tekið er fyrir í nýjum þætti af Cloud of Ash, sem datt á Youtube í dag. Horfðu á þáttinn hér fyrir neðan.
Sjá einnig: Nýtt íslenskt grín: Þáttaröð í heild sinni á Youtube
Cloud of Ash er íslensk gamanþáttaröð á Youtube. Þættirnir eru örstuttir, í kringum þrjár mínútur, og fjalla um Atla og Brogan sem starfa í lundabúð í Reykjavík. Steindór Grétar Jónsson skrifaði þættina og Garðar Stefánsson leikstýrir. Með aðalhlutverk fara Atli Bollason og Brogan Davison
Instagram-reikningur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur vakið heimsathygli og er nú kominn með 160 þúsund fylgjendur.
Horfðu á þáttinn hér fyrir neðan. Fleiri þætti má finna hér.