Kötturinn Bófi rænir förðunarburstum af konum í hverfinu, sjáðu myndbandið

Kötturinn Bófi er ansi lævís. Síðustu mánuði hefur hann stundað að ræna förðunarburstum af konum í hverfinu og eigendurnir, fjölmiðlakonan Ósk Gunnarsdóttir og fjölskylda hennar, vita ekki sitt rjúkandi ráð. Sjáðu myndbandið hér fyrir ofan.

Bófi hóf að stunda þessa iðju fljótlega eftir að hann kom inn á heimilið, eins og Kristín Péturs, útsendari Nútímans, komst að. Undanfarið hefur hann fært sig upp á skaftið, eins og Ósk lýsir í myndbandinu. Hann kom til að mynda með geitungabú inn í stofu til þeirra á dögunum. Húsbóndinn var einn heima og átti fótum sínum fjör að launa.

Sjáðu umfjöllun um köttinn Bófa í spilaranum hér fyrir ofan.

Auglýsing

læk

Instagram