Myndband: Hundur kveður heiladauðan eiganda sinn, fékk að koma að sjúkrahúsið og hitta hann

Myndskeið þar sem sjá má hund kveðja eiganda sinn í hinsta sinn í sjúkrarúminu hefur vakið gríðarlega mikla athygli.

Búið er að horfa á það oftar en níu milljón sinnum eftir að því var deilt 1. desember.

Á myndskeiðinu má sjá Ryan Jessen, 33 ára, sem fékk heilablæðingu. Þegar hann hafði verið fluttur á sjúkrahús kom í ljós að ekki væri hægt að bjarga honum þar sem heilinn starfaði ekki lengur. Líffæri hans verða gefin, meðal annars til 17 ára drengs sem fær hjarta hans.

Starfsfólk sjúkrahússins leyfði fjölskyldu Jessen að koma með Mollie, hund Jessen, á sjúkrahúsið svo hann gæti fengið að kveðja eiganda sinn. Sjón er sögu ríkari, sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram