Sjáðu Ingvar E. Sigurðsson í nýju textamyndbandi Of Monsters and Men

Stórleikarinn Ingvar E. Sigurðsson kemur fram í nýju textamyndbandi Of Monsters and Men við lagið Thousand Eyes. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

Hljómsveitin hefur verið dugleg við að senda frá sér textamyndbönd við lög af nýju plötunni Beneath the Skin sem kom út fyrr á árinu.

Sjá einnig: Birtir sömu myndina af Ingvari E. á hverjum degi

Siggi Sigurjóns kom fram í fyrsta textamyndbandinu við lagið Crystals og síðan þá hafa þau gefið út nokkur svipuð myndbönd.

Sjáðu myndbandið með Ingvari hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram