Ný stikla úr stórmyndinni Everest eftir Baltasar Kormák hefur litið dagsins ljós. Sjáðu stikluna hér fyrir neðan.
Everest verður opnunarmynd kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum sem hefst 2. september. Ingvar E. Sigurðsson fer með hlutverk í henni ásamt Jake Gyllenhaal, Keiru Knightley, Robin Wright, Josh Brolin, Emily Watson og Sam Worthington.
Sjá einnig: Baltasar Kormákur opnar kvikmyndahátíðina í Feneyjum
Myndin er byggð á bókinni Into Thin Air eftir rithöfundinn og fjallagarpinn Jon Krakauer. Segir hún frá hörmungaratburðum sem áttu sér stað á Everestfjalli árið 1996 þar sem átta fjallgöngumenn fórust.
Sjáðu nýju stikluna hér fyrir neðan.
https://youtu.be/B1Y22qy7ylY