Örskýring: Afhverju eru allir að tala um málverk Jóns Gnarr?

Um hvað snýst málið?

Jón Gnarr birti mynd á Twitter þar sem sást í listaverk eftir breska götulistamanninn Banksy. Í samtali við Fréttablaðið sagði Jón að verkið væri persónuleg gjöf til hans frá Banksy. Strangar reglur gilda um gjafir til kjörinna embættisfulltrúa en Jón sagði að gjöfin hafi aldrei tengst embætti borgarstjórans.

Hvað er búið að gerast?

Eftir að Jón ræddi málverkið í fjölmiðlum fóru í gang miklar umræður um lagalega hlið slíkra gjafa. Pawel Bartozek og Snæbjörn Brynjarsson eru á meðal þeirra sem hafa gagnrýnt Jón á meðan aðrir telja málið vera storm í vatnsglasi. Kristján Gunn­ar Valdi­mars­son, lektor í skatta­rétti við Há­skóla Íslands, sagði í samtali við mbl.is að ljóst væri að verkið ætti að flokka sem skattskylda gjöf.

Í frétt Frétta­blaðsins kem­ur fram að það megi áætla að verkið sé hæg­lega millj­óna virði miðað við sölu- og upp­boðsverð á eft­ir­prent­un­um víða á net­inu. Þar kemur einnig fram að Jón hafi aldrei látið verðmeta verkið.

Jón gerði sjálfur lítið úr fréttunum í færslu á Facebook síðu sinni. Hann segir þær getgátur um að verkið sé margra milljóna virði ekki byggðar á neinum rökum og að þetta sé í raun „bara plaggat“.

„Ég vil taka það fram að ég er eng­inn list­fræðing­ur. Ég hef ekk­ert vit á því hvernig lista­verk eru met­in en þetta er það sem mér finnst og hef­ur alltaf fund­ist. Þetta er bara plaggat sem ég fékk kurt­eys­is­legt leyfi frá lista­mann­in­um sem gerði það bara af því að ég ber svo mikla virðingu fyr­ir hon­um. En þetta er samt bara plaggat.“

Hvað gerist næst?

Reykjavíkurborg hefur engin áform uppi um að kalla eftir verkinu til baka en þetta kemur fram í svari frá Bjarna Brynjólfssyni, upplýsingastjóra Reykjavíkurborgar á Vísi.

Örskýringar eru 200 orða fréttaskýringar Nútímans um mál sem mikið er fjallað um. Sendu okkur póst ef þú ert með hugmynd að örskýringu

Auglýsing

læk

Instagram