Örskýring: Sagan á bakvið kjólinn sem rústaði internetinu

Um hvað snýst málið?

Kjóll, sem fólk getur ekki verið sammála um hvort sé hvítur og gylltur eða svartur og blár, hefur farið eins og eldur í sinu um netheima.

Hvað er búið að gerast?

Skoska tónlistarkonan Caitlin McNeill birti mynd af kjólnum á Tumblr-síðu sinni á fimmtudag og sagði:

Þið verðið að hjálpa mér. Er þessi kjóll hvítur og gylltur eða blár og svartur? Við vinirnir eru ósammála og það er fara með okkur.

Internetið fór á hliðina þegar BuzzFeed spurði lesendur sína um litina. Í kjölfarið dreifðist hann hratt um netheima og söngkonan Taylor Swift tók meira að segja afstöðu til málsins þegar hún sagði kjólinn bláan og svartan.

Hvernig er hann á litinn? 

Hann er blár og svartur:

Heilar okkar túlka lýsingu sem berst til augnanna á mismunandi hátt. Hér eru vísindin á bakvið þetta furðulega misræmi útskýrt með hjálp vísindanna.

Örskýringar eru 200 orða fréttaskýringar Nútímans um mál sem mikið er fjallað um. Sendu okkur póst ef þú ert með hugmynd að örskýringu.

Auglýsing

læk

Instagram