Eurovision-stjarnan Loreen birtir dramatískt myndband frá Íslandi

Eins og Nútíminn greindi frá um helgina er sænska Eurovision-stjarnan Loreen stödd á Íslandi. Hún hefur verið dugleg við að birta myndir á Instagram þó að hún hafi reyndar haft hægt um sig í gær.

Sjá einnig: Loreen skoðar sig um á Íslandi og birtir myndir á Instagram

Loreen birti í dag ansi dramatískt myndband frá Íslandi undir kassamerkjunum #iceland og #freedom. Það er svo sem ekki mikið meira um myndbandið að segja.

View this post on Instagram

#Iceland #freedom

A post shared by LOREEN (@loreenofficial) on

Loreen þekkjum við að sjálfsögðu úr Eurovision en hún rústaði keppninni í Aserbædsjan árið 2012 með laginu Euphoria. Lagið sló víðar í gegn og náði til dæmis þriðja sæti á breska vinsældarslistanum. Ekkert Eurovision lag utan Bretlands hefur náð þeim árangri.

Auglýsing

læk

Instagram