Fór af stað í bíó: Drengurinn vildi koma í heiminn á frumsýningu nýjustu myndar pabba

Einn af aðalleikurum kvikmyndarinnar Blóðberg sá ekki nema korter af frumsýningu myndarinnar. Hann hafði mikilvægari hnöppum að hneppa ásamt eiginkonu sinni.

 

Leikarinn Sveinn Ólafur Gunnarsson og eiginkona hans, sjónlistakonan Jóhanna Helga Thorkelsdóttir, þurftu að yfirgefa frumsýningu á kvikmyndinni Blóðberg í Egilshöll þar sem hún var komin af stað í fæðingu. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Um korter var liðið af myndinni þegar drengur þeirra hjóna vildi láta sjá sig og samkvæmt Fréttablaðinu var hann mættur á svæðið um klukkustund eftir að þau yfirgáfu sýninguna.

Sveinn Ólafur fer með nokkuð viðamikið hlutverk í myndinni sem er nýjasta afurð Vesturports.

Auglýsing

læk

Instagram