Ljúffeng tacos með þorski og avocado-kóríander sósu

Hráefni fyrir fiskinn:

  • 600 gr þorskbitar
  • 1 ½ tsk reykt paprika
  • 1 tsk hvítlaukssalt
  • 1 tsk þurrkað oregano
  • 1 tsk laukduft
  • ½ tsk cumin
  • ½ tsk salt
  • ½ tsk púðursykur
  • 1/4 tsk cayenne pipar
  • 2 msk olía
  • 12 litlar tortillur (hægt að kaupa stórar og skera út minni)

Hráefni fyrir sósuna:

  • 1 dl sýrður rjómi
  • 1 þroskað avocado
  • 1/2 dl saxað kóríander
  • safinn af 1 lime
  • 1 msk jalapeno, saxað smátt
  • Salt, eftir smekk

Hráefni fyrir hrásalat:

  • ½ rauðkálshaus, skorinn í þunnar ræmur
  • ¼ hvítkálshaus, skorinn í þunnar ræmur
  • ½ laukur, skorinn þunnt
  • 1 dl kóríander saxað
  • safinn a 1 lime

Aðferð:

1. Takið litla skál og blandið saman reyktri papriku, hvítlaukssalti, oregano, laukdufti, cumin, salti, púðursykri og cayenne pipar. Sáldrið blöndunni næst yfir fiskinn og nuddið kryddinu vel í hann, á báðum hliðum.

2. Setjið allt hráefnið fyrir sósuna í blandara eða mixið með töfrasprota, þar til úr verður silkimjúk sósa.

3. Blandið öllum hráefnum fyrir hrásalatið saman í stóra skál og blandið vel saman.

4. Hitið olíu á pönnu og steikið fiskinn, ekki allan í einu, best að gera það í pörtum. Steikið bitana í um 4-5 mín á hvorri hlið eða þar til fiskurinn er orðinn fallega gylltur á litinn og eldaður í gegn.

5. Takið fiskinn af pönnunni og það má nota heita pönnuna til þess að hita upp tortillurnar, leggja þær á pönnuna í um 30 sek á hvorri hlið.

.6. Raðið síðan í hverja tortillu, hrásalati, sósu, fisk og toppið með meiri sósu og fersku kóríander. Njótið!

Auglýsing

læk

Instagram