Ofnbakað brokkolí með hvítlauk, chilli og parmesan

Hráefni:

  • 1-2 brokkolíhöfuð, skorin í bita
  • 1 dl ólíuolía
  • 1/2 msk rifinn sítrónubörkur
  • 2 msk sítrónusafi
  • 2 tsk salt
  • 1/2 tsk svartur pipar
  • rauðar chilli flögur
  • 1 1/2 tsk hvítlaukskrydd
  • 3 hvítlauksgeirar, rifnir niður
  • 1/2 dl möndluflögur (má sleppa)
  • 1 dl rifinn parmesan

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 220 gráður og setjið bökunarpappír á ofnplötu. Hrærið næst saman ólívuolíu, sítrónubörk, sítrónusafa, salt, pipar, chilli flögur, hvítlaukskrydd og hvítlauk. Setjið brokkolí-bitana saman við og blandið vel.

2. Dreifið úr brokkolí-bitunum á ofnplötuna og bakið í ofninum í 10-12 mín. Takið úr ofninum, dreifið möndluflögunum yfir og setjið þetta aftur inn í ofn í 10-12 mín.

3. Takið úr ofninum og dreifið parmesanosti yfir. Berið fram strax.

Auglýsing

læk

Instagram