Engin kona var tilnefnd sem besti leikstjórinn og Natalie Portman benti á það: „Hér eru karlarnir sem eru tilnefndir“

Leikkonan Natalie Portman og leikstjórinn Ron Howard stigu á svið á Golden Globes-verðlaunahátíðinni í nótt og tilkynntu um sigurvegara í flokki kvikmyndaleikstjóra. Engin kona var tilnefnd sem besti leikstjórinn og Natalie Portman benti rækilega á það. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Þegar kom að henni að segja að eftirfarandi leikstjórar væru tilnefndir sagði hún: „And here are the all-male nominees“ eða „Hér eru karlarnir sem eru tilnefndir“.

Ron Howard vissi ekki alveg hvernig hann átti að bregðast við eins og myndbandið sýnir.

Auglýsing

læk

Instagram