Guðný María með nýjan smell sem allir tengja við: „Nú fer ég í helgarfrí helgarfrí helgarfrí“

Söngkonan Guðný María Arnþórsdóttir hefur sent frá sér nýjan smell: Nú fer ég í helgarfrí. Horfðu á myndbandið við lagið hér fyrir neðan.

Guðný sló í gegn um páskana með lagið Okkar okkar páska. Hún semur, útsetur og syngur eigin lög en sagði í viðtali við Nútímann um páskana að vinsældirnar kæmu sér ekki á óvart. „Ég er nú bara sveitastelpa úr Þingeyjarsveit en maður veit aldrei hvaða tónlist nær til fólks. Þetta lag er bæði einfalt og grípandi og fólk er fljótt að læra það,“ sagði hún.

Sjá einnig: Guðný María slær í gegn með lagið Okkar okkar páska: „Vissi alltaf að ég hefði þennan hæfileika“

Guðný hafði gengið með þann draum lengi að gefa út tónlist og hóf fyrr í vetur að læra lagasmíði við FÍH. „Það gengur rosalega vel og ég hef lært alveg heilmikið. Ég vissi alltaf að ég hefði þennan hæfileika og það er svakalega gaman að geta samið og gefið út tónlist,“ segir hún.

Hlustaðu á nýja smellinn hér fyrir neðan

Auglýsing

læk

Instagram