Helgi Hrafn tekur hræðilega chili-prófið: „Djöfull er þetta gott!“

Næstu daga fáum við frambjóðendur til að gangast undir chili-prófið í kosningasjónvarpi Nútímans. Prófið fer þannig fram að fimm kjúklingavængjum frá Hamborgarafabrikkunni verður stillt upp fyrir framan frambjóðendurna og Teitur Gissurarson spyr þau fimm spurninga.

Hvernig gekk þeim?

Vængirnir verða þaktir sterkari sósu eftir því sem líður á. Þannig að sá fyrsti er með hefðbundinni sósu frá Hamborgafabrikkunni en þeir næstu verða allir með sérinnfluttum ofursósum sem fást yfirleitt ekki á veitingastöðum á Íslandi. Síðasti vængurinn er svo grimmilega sterkur enda þakinn hinni alræmdu Da Bomb.

Nú er komið að Helga Hrafni að taka prófið. Í kjölfarið fylgja svo Björt Ólafsdóttir, Logi Einarsson og Sigurður Ingi Jóhannsson.

Hugmyndin er fengin frá þáttunum Hot Ones á Youtube þar sem viðmælendur borða sterka vængi og svara erfiðum spurningum. Við hvetjum ykkur öll til að kíkja á þættina. Þeir eru frábærir. Loks þökkum við Birni Teitssyni fyrir veitta chili-ráðgjöf.

Auglýsing

læk

Instagram