Kaleo tók upp myndband ofan í Þríhnúkagíg

Kaleo tók nýlega upp myndband við lagið Way Down We Go ofan í Þríhnúkagíg. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

Jökull Júlíusson, segir á Vísi, að þetta hafi verið hægara sagt en gert.

Þetta var mjög krefjandi og skemmtilegt verkefni. Við fórum með allar græjur niður, trommusett, magnara, hátalara, ljós o.fl. Það þurfti að fara með þetta 120 metra niður í eldfjallið sem er hægara sagt en gert.

Kaleo hitar upp fyrir tónleika Kings of Leon í Nýju Laugardalshöllinni þann 13. ágúst næstkomandi. Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram