Myndband: Tíu ára drengur eltur af lögreglu á 160 kílómetra hraða

Tíu ára piltur var stöðvaður í Ohio í Bandaríkjunum í síðustu viku eftir langan eltingaleik við lögreglu. Drengurinn sem hafði stolið bíl móður sinnar í Cleveland ók á allt að 160 kílómetra hraða áður en lögrelgan náði loksina að þvinga hann til að stoppa. Sjáðu myndband af atvikinu í spilaranum hér að ofan.

Enginn slasaðist við eltingaleikinn en þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem drengurinn er stöðvaður á miklum hraða undir stýri.

Tim Hoffman, lögreglumaður segir í samtali við USA Today að eftir að lögreglu tókst að stöðva bílinn hafi honum verið komið á sjúkrahús þar sem líðan hans var könnuð. „Það er mikil heppni að enginn slasaðist,“ sagði Hoffman

Auglýsing

læk

Instagram