Snoop Dogg gerir grín að rappstíl Úlfs Úlfs

Myndband sem sýnir Snoop Dogg grínast með rappstíl sem honum virðist ekki hugnast hefur birt á Youtube. Notandi sem kallar sig Kzuurr hefur klippt brot úr myndbandi Úlfs Úlfs við smellinn Brennum allt við brotið og útkoman er ansi spaugileg.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

Sjá einnig: Níu skemmtilegar tilvísanir í samtímann á nýju plötunni með Úlfi Úlfi

Snoop Dogg er gamall hundur í bransanum. Það fyndna er að margir sem sáu rapparann troða upp sem plötusnúður í Laugardalshöll á dögunum sögðu Úlf Úlf hafa stolið senunni.

Auglýsing

læk

Instagram