Ingvar plataði Ella til að bera þunga hluti á meðan hann þóttist pissa: „Geturðu ekki tekið aðeins meira eða?“

Það gengur á ýmsu hjá Ella og Ingvari, sem eru að gera upp íbúð í þáttunum Gerum þetta bara! á Nútímanum. Þriðji þáttur er kominn í loftið en hann hefst á því að Ingvar platar Ella til að bera dót á meðan hann þykist upptekinn við að pissa. Horfðu á þáttinn hér fyrir ofan. Lokaútkoman verður svo sýnd í lokaþættinum.

  1. þáttur: Gerðu upp íbúð þrátt fyrir varnarorð fagmanna: „Ekki gera þessa íbúð upp — það borgar sig ekki“
  2. þáttur: Elli og Ingvar óðu í stofuna með sleggjum og við erum með dramatískt myndband sem sannar það

Lesendur Nútímans kynntust Ella og Ingvari árið 2016 þegar þeir gerðu upp íbúð í vefþáttunum Gerum þetta bara. Nú eru strákarnir komnir aftur í nýjum þáttum og viðfangsefnið er íbúð sem fagmenn höfðu sagt að borgi sig ekki að gera upp.

Elli og Ingvar voru ósammála. Þeir réðust í verkið með reynslu og húmor að vopni og úr varð þessi stórskemmtilega fimm þátta sería eftir Heimi Bjarnason sem sýnd verður hér á Nútímanum. Fylgstu með frá byrjun og horfðu á fyrsta þáttinn hér fyrir ofan.

Auglýsing

læk

Instagram