Elli og Ingvar óðu í stofuna með sleggjum og við erum með dramatískt myndband sem sannar það

Annar þáttur í annarri þáttaröðinni af Gerum þetta bara! er kominn í loftið. Í þættinum ráðast Elli og Ingvar á stofuna. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan og sjáðu hvernig stofan leit út fyrir og eftir. Lokaútkoman verður svo sýnd í lokaþættinum.

  1. þáttur: Gerðu upp íbúð þrátt fyrir varnarorð fagmanna: „Ekki gera þessa íbúð upp — það borgar sig ekki“

Lesendur Nútímans kynntust Ella og Ingvari árið 2016 þegar þeir gerðu upp íbúð í vefþáttunum Gerum þetta bara. Nú eru strákarnir komnir aftur í nýjum þáttum og viðfangsefnið er íbúð sem fagmenn höfðu sagt að borgi sig ekki að gera upp.

Elli og Ingvar voru ósammála. Þeir réðust í verkið með reynslu og húmor að vopni og úr varð þessi stórskemmtilega fimm þátta sería eftir Heimi Bjarnason sem sýnd verður hér á Nútímanum. Fylgstu með frá byrjun og horfðu á fyrsta þáttinn hér fyrir ofan.

Auglýsing

læk

Instagram