Slæmur leikari endurgerir atriði úr Hollywood-myndum sem voru teknar upp á Íslandi

Youtube-notandinn Bryan Evans hefur birt myndband þar sem hann endurgerir atriði úr Hollywood-kvikmyndum sem voru teknar upp að hluta hér á landi. Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.

„Ég biðst afsökunar á slæmum leik,“ segir Bryan og það verður að viðurkennast að hann ætti ekki að hætta í dagvinnunni og gerast leikari. Hann endurleikur atriði úr Batman Begins við Svínafellsjökul og atriði úr Oblivion við gíginn Hrossaborg.

Þá leikur hann atriði úr Interstellar við Falljökul, atriði úr Prometheus við Dettifoss og loks atriði úr Secret Life of Walter Mitty í Stykkishólmi.

Auglýsing

læk

Instagram