Örskýring: Nýjar vísbendingar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu sanna sakleysi sakborninga

Um hvað snýst málið?

Guðmundar- og Geirfinnsmálið er viðamikið sakamál, kennt við Geirfinn Einarsson og Guðmund Einarsson. Þeir tengjast ekki þrátt fyrir að bera sama föðurnafn. Það eina sem tengir þá saman eru sakborningar málsins.

Hvað er búið að gerast?

Árið 1980 voru sex ung­menni dæmd til fang­els­is­vistar fyrir að hafa orðið tveimur mönnum að bana.

Lík mann­anna hafa aldrei fund­ist og byggð­ist dóm­ur­inn því á öðrum sönn­un­ar­gögn­um, meðal ann­ars játn­ingum sem síðar voru dregnar til baka. Talið er að játningarnar hafi verið fengnar fram með pynt­ing­um. Þá hafa rannsóknaraðferðir lögreglunnar verið gagnrýndar.

Sævar Ciesi­elski var dæmdur í sautján ára fang­elsi og Krist­ján Viðar Við­ars­son í sextán ára, Tryggvi Rúnar Leifs­son var dæmdur í þrettán ára fang­elsi og Guð­jón Skarp­héð­ins­son í tíu ára fang­elsi. Erla Bolla­dóttir var dæmd í þriggja ára fang­elsi og Albert Klahn Skafta­son í árs fang­elsi.

End­ur­upp­töku­nefnd mælti í fyrra með því að mál Sæv­­ars Cies­i­elskis, Tryggva Rún­­­ars Leifs­­son­­ar, Alberts Klahns Skafta­­sonar og Guð­jóns Skarp­héð­ins­­sonar verði tekin upp á nýjan leik.

Hvað gerist næst?

Ragnar Aðalsteinsson, einn verjenda sakborninga í Guðmundar og Geirfinnsmálinu, segir að nýjar vísbendingar sem fram koma í óútgefinni bók blaðamannsins Jóns Daníelssonar sanni sakleysi Sævars Ciesielski og þar með annarra sem blönduðust inn í málið.

Netflix er stærsti einstaki fjármögnunaraðili heimildarmyndar um Guðmundar- og Geirfinnsmálið sem Sagafilm vinnur nú að. Til stendur að frumsýna myndina á fyrstu mánuðum næsta árs.

Örskýringar eru 200 orða fréttaskýringar Nútímans um mál sem mikið er fjallað um. Sendu okkur póst ef þú ert með hugmynd að örskýringu.

Auglýsing

læk

Instagram