Hversu miklu bulli trúa túristar upp á Íslendinga? Vatnið eykur kynhvöt og Bjarni Ben leikur í Óþelló

Fólk virðist trúa öllu upp á Íslendinga. Erlendis þykir til dæmis fullkomlega eðlilegt að halda því fram að flestir Íslendingar trúi á álfa. Elísabet Inga, útsendari Nútímans, fór á stúfana og athugaði hversu miklu bulli erlendir ferðamenn eru tilbúnir að trúa upp á Íslendinga.

  • Trúa þeir að Bjarni Benediktsson, nýr forsætisráðherra, fari einnig með aðalhlutverkið í Óþelló?
  • Trúa þeir að Donald Trump sé hálfu Íslendingur?
  • Trúa þeir að íslenska vatnið auki kynhvöt?
  • Og trúa þeir að allir ráðherrarnir í nýrri ríkisstjórn séu konur?

????????????

Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Auglýsing

læk

Instagram