Kjúklingur með kóresku ívafi

Hráefni:

  • 1-2 msk bragðlaus olía
  • 450 gr kjúklingabringur eða úrbeinuð kjúklingalæri, skorið í bita
  • salt & pipar
  • Sósan:
  • 1 msk sojasósa
  • 1 msk hrísgrjónaedik
  • 1-2 tsk Sriracha sósa
  • 2 msk tómatsósa
  • 3 msk hunang
  • 1 msk púðursykur
  • 1 tsk sesamolía
  • 1 msk rifinn hvítlaukur
  • 1 tsk rifið engifer
  • Til skrauts:
  • ristuð sesamfræ
  • 1-2 saxaðir vorlaukar

Aðferð:

1. Hitið 1 msk af olíu á pönnu. Steikið helminginn af kjúklingnum og kryddið hann til með salti og pipar. Þegar kjúklingurinn er farinn að brúnast á öllum hliðum er hann tekinn til hliðar og settur á disk eða fat. Steikið hinn helminginn af kjúklingnum á sama hátt.

2. Á meðan verið er að steikja kjúklinginn fara öll hráefnin fyrir sósuna saman í skál og þeim blandað vel saman.

3. Setjið kjúklinginn aftur á pönnuna ásamt sósunni og leyfið þessu að malla í 2-4 mín þar til sósan fer að þykkna. Toppið með sesamfræjum og söxuðum vorlauk.

Auglýsing

læk

Instagram